1. júní til 4. september 2026
Skráðu þig í dag og tryggðu þér pláss
Tímar merktir *Opinn tími eru opnir öllum með Opna kortið, klippikort eða áskrift — skráning fer fram í Momoyoga appinu. Aðrir tímar eru námskeiðstímar. Allir tímar eru kenndir í YogaLíf, Hlíðarsmára 17, 200 Kópavogi.
Róleg og djúp teygjuæfing þar sem stellingum er haldið í lengri tíma. Hentar vel til að losa spennu og dýpka slökun.
Opinn tímiBlíðar yoga æfingar sem henta öllum aldurshópum. Fullkomin leið til að byrja daginn eða ljúka honum.
Opinn tímiStyrkjandi æfingar fyrir djúpvöðva með áherslu á mitti, mjaðmir og bak. Við bjóðum upp á Pilates 1-4 fyrir mismunandi getu.
60 mínFrábær blanda af pilates og yoga í hádeginu. Endurnærandi fyrir líkama og sál á miðjum degi.
Blandaðir tímarEinstök samsuða af yoga og pilates. Byggir upp styrk og sveigjanleika í fullkomnu jafnvægi.
Fyrir byrjendur og lengra komnaDjúpslökun með stuðningi frá bolstrum og teppum. Gefðu þér tíma til að hvílast og endurnærast.
Opinn tímiKraftmikið yoga sem hentar sérstaklega vel fyrir karla en allir velkomnir. Byggir upp styrk og sveigjanleika.
60 mínNotaleg yogastund í rólegheitum. Fullkomin leið til að ljúka deginum og undirbúa sig fyrir góðan nætursvefn.
Opinn tímiYoga Líf er notaleg og hlýleg yoga og pilatesstöð í hjarta Kópavogs. Við bjóðum upp á fjölbreytt námskeið sem henta öllum, óháð aldri eða getu.
Góð heilsa er lykillinn að hamingju og vellíðan. Yoga og Pilates hjálpar þér að samtvinna huga, líkama og sál – gefur þér styrk, sveigjanleika, innri ró og betri jarðtengingu.
Eigandi Yoga Lífs, sjúkraþjálfari og Stott Pilates kennari. Jógakennari með áherslu á að lifa í núinu og vera jarðtengdari.
Yin yoga sérfræðingur með RYT 200 réttindi. Leggur áherslu á jóga og núvitundarhugleiðslu við úrvinnslu áfalla.
Jógakennari með áherslu á mjúkt endurnærandi jóga og Yin yoga. MSc í viðskiptafræði og mikill náttúruunnandi.
Varðandi opna tíma þá er mikilvægt að skrá sig í tímana inn á Momoyoga appinu til þess að tryggja að það verði tekin frá dýna fyrir þig þar sem það er takmarkað pláss.
Ef þig langar til að vera hluti af okkar yndislega yoga og pilates samfélagi getur þú skráð þig með því að senda okkur skilaboð á messenger eða með því að senda tölvupóst í yogalif@yogalif.is
Við vitum að dagarnir geta verið annasamir – en þó er ómetanlegt að gefa sér tíma fyrir líkama og sál. Með Opna áskriftarkortinu færðu sveigjanleika til að mæta í þá tíma sem henta þér, þegar hentar.
Í hverri viku bjóðum við upp á 6 opna tíma – blöndu af Yoga og Pilates, þannig að þú getur valið það sem nærir þig best hverju sinni. Þú hefur þannig frelsi til að skapa þína eigin rútínu.
Verðið er aðeins 14.500 kr. á mánuði fyrir ótakmarkað aðgengi að opnum tímum.
Við tökum vel á móti bæði nýjum og núverandi Yoga Lífs vinum og hlökkum til að eiga góðar stundir með ykkur á dýninni í haust/vetur. Nánast allir geta iðkað yoga og Pilates þar sem hægt er að fara á sínum eigin hraða og getu í gegnum æfingarnar.
Áskrift á námskeið og alla opna tíma þýðir að áskriftin er rúllandi hvern mánuð. Ef viðkomandi vill hætta í áskrift þá þarf að segja henni upp með því að senda tölvupóst á yogalif@yogalif.is með minnst 2 vikna fyrirvara fyrir næsta greiðsludag.
Árskort á námskeið og alla opna tíma þýðir að það er binding í eitt ár. Ef viðkomandi vill hætta eftir árið þarf að láta vita með því að senda tölvupóst á yogalif@yogalif.is annars rúllar áskriftin áfram inn í annað ár.
OPNA KORTIÐ þýðir að áskriftin er rúllandi hvern mánuð. Ef viðkomandi vill hætta í áskrift þá þarf að segja henni upp með því að senda tölvupóst á yogalif@yogalif.is með minnst 2 vikna fyrirvara fyrir næsta greiðsludag.
YogaLíf er jóga- og pilatesstúdíó að Hlíðarsmára 17, 200 Kópavogi (Smárahverfi, stutt frá Smáralind). Tímar eru kenndir alla daga vikunnar – fyrsti tími hefst kl. 7.00 á virkum dögum og síðustu kvöldtímar kl. 20.00–20.15. Sjá nákvæma stundatöflu ofar á síðunni. Sími 789-4540, netfang yogalif@yogalif.is.
Opna kortið (allir opnir tímar, engin binding) kostar 14.500 kr/mán. Áskrift að námskeiði og öllum opnum tímum kostar 17.900 kr/mán án bindingar eða 15.900 kr/mán með ársbindingu. Stakt námskeið með opnum tímum kostar 24.900 kr og 10 skipta klippikort í opna tíma 26.900 kr. Sjá Versla fyrir skráningu.
Hlíðarsmári 17
200 Kópavogur
789-4540
Mán-Fös: 6:00 - 20:00
Lau-Sun: 7:00 - 18:00