Vilborg Anna er eigandi Yoga Lífs. Hún hefur lengi haft áhuga á heilsurækt og íþróttum. Hún æfði fimleika í mörg ár á sínum yngri árum og dæmdi og kenndi fimleika í nokkur ár eftir að hún hætti að iðka sjálf. Hún lauk námi í Sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands árið 2000 og hefur unnið við sitt fag frá útskrift. Árið 2008 útskrifaðist hún sem Stott Pilates kennari og hefur kennt Pilates síðan þá bæði hér heima og í Noregi þar sem hún bætti við sig kennararéttindum á Pilates reformer. Pilates er frábært æfingakerfi sem styrkir djúpa vöðvakerfið og hefur hún notað Pilates mikið í gegnum starf sitt sem sjúkraþjálfari með mjög góðum árangri á alls kyns líkamlega verki. Vilborg mætti í fyrsta jógatímann sinn í Noregi fyrir 8 árum síðan. Hún varð strax heilluð af jóga og fann fljótt bæði líkamlegan og andlegan ávinning. Auk þess að liðkast, styrkjast og mýkjast fann hún fyrir meiri orku, betra andlegu og líkamlegu jafnvægi auk þess sem yogað hjálpaði til með að lifa í núinu og vera jarðtengdari. Árið 2016 fór hún í jógakennaranám í Jógastúdíó hjá Drífu Atladóttur og útskrifaðist sem jógakennari árið 2017. Hún rekur nú Yoga Líf.
Áslaug byrjaði að iðka jóga árið 2004 og leið ekki langur tími þar til hún var ákveðin í að verða sér úti um kennararéttindi. Það var þó ekki fyrr en haustið 2018 sem úr því varð og kláraði hún RYT 200- réttindi við Iceland Power Yoga undir leiðsögn Alice Riccardi í janúar 2019. Í apríl sama ár lagði hún land undir fót og lauk 70 stunda kennararéttindum í Yin jóga við Insight Yoga Institude undir leiðsögn eiganda stofnunarinnar Sarah Powers. Áslaug leggur nú stund á dýpra Yin jóga nám við stofnunina sem felst í því að vera í stöðugu sambandi við mentor, skila inn verkefnum og mæta í vinnustofur erlendis. Sálarrækt og andleg málefni eru mikilvægur partur af náminu og með tengsl hugar og líkama að leiðarljósi hefur hún lagt áherslu á jóga og núvitundarhugleiðslu við úrvinnslu andlegra og líkamlegra áfalla. Áslaug kenndi Yin jóga hjá Heillandi Hug 2019 til 2020 auk þess að taka að sér einkatíma. Áslaug er einnig þjóðfræðingur að mennt.
Jóhanna hefur alltaf haft gaman að hreyfingu en þá var sund og hlaup aðalval. Það var svo árið 2011 að hún fór að bæta jóga við hreyfirútínuna. Ástæðan fyrir því var að hún var farin að finna fyrir álagsmeiðslum í mjöðmum og hnjám eftir langar hlaupaæfingar. Henni fannst því tilvalið að prófa jóga aðalega til að vinna með liðleika og styrk og þannig koma í veg fyrir eymsli. Það var strax í fyrsta tímanum sem Jóhanna heillaðist og fann þá töfra sem jóga gefur. Ekki aðeins jókst liðleiki og styrkur heldur fylgdi rólegri hugur og sáttari sál í kjölfarið. Í öðrum orðum þá jókst vellíðan þar þar sem sál, hugur og líkamani tengjast. Haustið 2018 tók hún jógaskrefið lengra og skráði sig í jógakennaranám og útskrifaðist sem jógakennari ári seinna frá Jógastúdíóinu í Reykjavík. Strax í kjölfarið fór hún að kenna hjá Yoga Líf og hefur kennt þar síðan með aðaláherslu á mjúkt endurnærandi jóga þar sem helsti fókus er að hlusta á líkamann, tengjast og njóta áhrifana/töfrana. Haustið 2021 bætti hún við sig Yin jóga kennararéttindum hjá Sólir Yoga og Alicia Casillas. Jóhanna er einnig með MSc gráðu í viðskiptafræði ásamt því að vera snyrtifræðingur og mikill náttúruunnandi.
Valgerður er grunnskólakennari að mennt. Starfar sem sérkennari í Hofstaðaskóla í Garðabæ. Valgerður lauk 230 stunda jógakennaranámi hjá Drífu Atladóttur í Jógastúdíó árið 2017 og Yoga Nidra kennaranámi hjá Matsyendra Saraswati árið 2019. Valgerður hefur kennt jóga á vinnustöðum og í grunnskólum. Hún byrjaði að stunda jóga árið 2011 hjá Mörthu Ernsdóttur jógakennara eftir að hafa fengið heilablóðfall og fann hvað jóga og hugleiðsla gerði henni gott bæði andlega og líkamlega. Í gegnum hennar eigin iðkun kýs hún að mæta sjálfri sér með mýkt og mildi til að efla líkamlegan og andlegan styrk
Yoga hefur alltaf heillað Arnbjörgu og eftir hennar fyrstu kynni var ekki aftur snúið. Jóga er nú fyrir löngu orðið stór partur af lífinu. Hún hefur dvalið á Yogastöðinni Kripalu Center í Bandaríkjunum. Hún lauk Jógakennaranámi frá Jóga Stúdíó árið 1997 R 200. Hún hefur kennt Jóga í Sporthúsinu frá 2012 til lok árs 2019. Hún var Coaching /lífsþjálfi frá ltsnlp London 2006 til 2007. Brautargengi 2005. Hún lauk Svæðameðferðafræði frá Svæðanuddskóla Þórgunnu árið 2000 og NLP Practitioner og Master námi 2002 í undirmeðvitundarfræði ( neuro, linguistic programming ). Hún hefur jafnframt lært Jóga hjá fjölmörgum kennurum eins og Amrid Deasi, Shanti Deasi, Peter Steros, Hugleiðslu og Friðarmiðstöðinni ásamt því að hafa tekið margs konar námskeið i mannlegum samskiptum. Hún lauk LEVITYyOGA R 200 kennaranámi 2018 hjá Peter Sterios, E RYT 500 og James Baily Ryt 500 í Somerset Englandi.
Vala er menntaður Yogakennari frá Jógastúdíó Reykjavíkur og með kennsluréttindi í mat based Pilates frá Future Fit Trainingí London. Hún kynntist fyrst Jóga og Pilates í New York árið 2000 þar sem hún æfði undir leiðsögn Lindu Farrell. Síðan þá hefur hún bæði kennt í London og í Reykjavík m.a. í Baðhúsinu, World Class, Marelybone Dance Studio, Sporthúsinu, Kramhúsinu, Háskóla Íslands, Ballettskóla Eddu Scheving og í Jógastúdíó Reykjavíkur. Hún kennir og hefur umsjón yfir hreyfingu leikara á Leikarabraut, Sviðslistadeildar við Listaháskóla Íslands.
Tinna er menntaður dansari frá Salzburg Experimental Academy of Dance í Austurríki. Hún útskrifaðist þaðan árið 2015 með Diploma gráðu í Dance performance. Samhliða dansnáminu ákvað hún að næla sér í Pilates kennararéttindi í Munich, Þýskalandi, bæði til að styrkja sig og til að auka starfsmöguleika í framtíðinni. Námið heitir BASI Pilates (Body Arts and Science International) og er undir handleiðslu Rael Isacowitz. Tinna flutti heim til Íslands árið 2016 og fór beint í að kenna bæði ballett, nútímadans, skapandi dans og svo Pilates. Tinna hefur því kennt Pilates meira og minna í 6 ár á Íslandi, í Ballettskóla Eddu Scheving, Kramhúsinu, Háskóla Íslands og Hreyfingu heilsulind. Tinna er núverandi nemandi á þjálfarabraut Heilsu- og íþróttafræði við Háskóla Íslands.
Rósa er menntaður dansari og danshöfundur frá Listaháskóla Ísland og dansskólanum P.A.R.T.S. í Brussel. Hún kynntist jóga og pilates í gegnum dansnám sitt. Þar lærði hún pilates og Iyengar jóga með áherslu á nákvæni og góða líkamansstöðu. Rósa hefur iðkað jóga sérstaklega til að koma í veg fyrir meiðsli sem oft vilja verða í gegnum dansnám. Eftir að náminu lauk hefur Rósa sífellt leitað leiða til þess að styrkja og liðka líkamann auk þess að næra sálina. Hún blandar saman jóga og pilates, en bætir einnig inn öðrum æfingum sem hafa reynst henni vel til þess að vinna með eða koma í veg fyrir meiðsli og verki, styrkja stoðkefi líkamans og bæta líkamsstöðu og vellíðan almennt. Rósa hefur lært jóga og pilates bæði á Íslandi og í Belgíu og hefur kennt víðsvegar um Brussel og Reykjavík, bæði einkatíma og hóptíma.
Íris er dansari, útskrifuð frá Rambert School of Ballet and Contemporary Dance. Samhliða náminu sótti hún einnig kennararéttindi hjá The Barre Collective í London. Hún dansaði síðar með Emergence Postgraduate Dance Company í Manchester þar sem hún öðlaðist MA gráðu í 'Performance and Professional Practices'. Íris hefur unnið að hinum ýmsu dans – og listaverkefnum, bæði erlendis og á Íslandi, ásamt því að kenna tíma við Kramhúsið, Richmond Barre, RESET by Form, Yoga Líf og Listdansskóla Íslands.
Áslaug Zoega er lærður Pilates kennari og hefur mikla ástríðu fyrir hreyfingu og heildrænni heilsu. Hún hefur búið stóran hluta ævinnar erlendis og flakkað á milli New York, Sydney, Kaupmannahafnar og Reykjavíkur, en er nú búsett á Íslandi.
Áslaug kynntist Pilates í Ástralíu árið 2017 og uppgötvaði hversu öflug leið það er til að auka líkamsvitund, vöðvatengingu og vellíðan. Hún lauk kennararéttindum í bæði Mat og Reformer Pilates og hóf kennaraferilinn í Sydney. Í kennslu leggur hún áherslu á styrk, hreyfanleika, flæði og að leiða fólk inn í djúpa tengingu við líkamann. Áslaug lauk einnig 200 klst. Yoga Alliance kennararéttindum 18 ára gömul og hefur stundað jóga frá barnsaldri. Hún á jafnframt bakgrunn í bardagaíþróttum, dansi og fimleikum. Þegar Áslaug er ekki að kenna eða æfa, sinnir hún háskólanámi í stjórnmálafræði, hagfræði og heimspeki.
Pilates tímar hjá Rebekku byggja á klassískri pilates-kennslufræði þar sem lögð er áhersla á styrk, liðleika og jafnvægi.
Rebekka leggur sig fram við að skapa jákvætt og opið rými þar sem iðkendur fá tækifæri til að ögra sjálfum sér, tengja hug og líkama og efla sjálfsöryggi í gegnum mjúka hreyfingu. Tímarnir henta öllum, óháð aldri, reynslu eða líkamlegri getu.
Rebekka er menntuð mat pilates kennari frá Stockholm Pilates Center og hefur kennt pilates víða um Reykjavík. Hún er jafnframt útskrifaður dansari sem nýtir dans bakgrunn sinn til að skapa flæðandi kennslu.
Erla Björk Sigurðardóttir steig sín fyrstu skref í Yogalíf í byrjun árs 2024 eftir að góð vinkona benti henni á stöðina þegar hún var að ná sér eftir bakveikindi. Hún heillaðist af umhverfinu og hve góð áhrif pilates æfingarnar höfðu á bæði andlega og líkamlega líðan og fljótt hún náði að byggja upp styrk með reglulegum æfingum.
Hún er hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir að mennt og starfar við sérhæfða meðgönguvernd á Landspítalanum. Hún hefur áhuga á öllu sem við kemur dansi og æfði sjálf ballet og jazzballet á sínum yngri árum en hefur undanfarin ár æft barre, jóga og pilates.
Áhugi hennar á pilates var til þess að hún sá tækifæri á að tengja saman ljósmóður- og pilatesfræðin og því skráði hún sig í pilateskennaranám. Í framtíðinni langar hana að hjálpa konum að ná fyrri styrk eftir fæðingu. Erla hlaut nýverið Comprehensive mat réttindi frá Kane School í New York sem hún hlaut undir leiðsögn Guðrúnar Svövu Kristinsdóttur.
"Pilates hentaði mér einstaklega vel þegar ég var að ná mér eftir veikindi í tengslum við brjósklos. Mikilvægi þess leiðrétta stöðu líkamans og byggja upp djúpa vöðvakerfið leynir sér ekki þegar maður finnur fyrir auknum styrk og skjótum bata. Pilates æfingakerfið má aðlaga að öllum hvort sem um byrjendur eða lengri komna er að ræða og óháð reynslu af Pilates
Magdalena er reynslumikill þjálfari með bakgrunn í pilates, dansi og líkams- og hugarvinnu. Hún sameinar þessar aðferðir á einstakan hátt og hefur þróað Healing Pilates – mjúka en djúpa þjálfun sem hjálpar fólki að endurbyggja styrk, minnka spennu og bæta líkamsvitund.
Hún hefur sérhæft sig í vinnu með konum eftir fæðingu, fólki sem glímir við stirðleika í hrygg eða hefur orðið fyrir meiðslum, og þeim sem vilja styrkja líkamann á öruggan og meðvitaðan hátt. Magdalena er þekkt fyrir hlýja nærveru, mjúka leiðsögn og hæfni til að sjá hvað líkaminn þarf. Með rólegu flæði og nákvæmri handleiðslu hjálpar hún nemendum að tengjast eigin líkama, virkja djúpvöðva og ná raunverulegum bata.