KENNARAR

Vilborg Anna Hjaltalín

VILBORG ANNA HJALTALÍN

Vilborg Anna er eigandi Yoga Lífs. Hún hefur lengi haft áhuga á heilsurækt og íþróttum. Hún æfði fimleika í mörg ár á sínum yngri árum og dæmdi og kenndi fimleika í nokkur ár eftir að hún hætti að iðka sjálf. Hún lauk námi í Sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands árið 2000 og hefur unnið við sitt fag frá útskrift. Árið 2008 útskrifaðist hún sem Stott Pilates kennari og hefur kennt Pilates síðan þá bæði hér heima og í Noregi þar sem hún bætti við sig kennararéttindum á Pilates reformer. Pilates er frábært æfingakerfi sem styrkir djúpa vöðvakerfið og hefur hún notað Pilates mikið í gegnum starf sitt sem sjúkraþjálfari með mjög góðum árangri á alls kyns líkamlega verki. Vilborg mætti í fyrsta jógatímann sinn í Noregi fyrir 8 árum síðan. Hún varð strax heilluð af jóga og fann fljótt bæði líkamlegan og andlegan ávinning. Auk þess að liðkast, styrkjast og mýkjast fann hún fyrir meiri orku, betra andlegu og líkamlegu jafnvægi auk þess sem yogað hjálpaði til með að lifa í núinu og vera jarðtengdari. Árið 2016 fór hún í jógakennaranám í Jógastúdíó hjá Drífu Atladóttur og útskrifaðist sem jógakennari árið 2017. Hún rekur nú Yoga Líf.

ÁSLAUG HEIÐUR CASSATA

Áslaug byrjaði að iðka jóga árið 2004 og leið ekki langur tími þar til hún var ákveðin í að verða sér úti um kennararéttindi. Það var þó ekki fyrr en haustið 2018 sem úr því varð og kláraði hún RYT 200- réttindi við Iceland Power Yoga undir leiðsögn Alice Riccardi í janúar 2019. Í apríl sama ár lagði hún land undir fót og lauk 70 stunda kennararéttindum í Yin jóga við Insight Yoga Institude undir leiðsögn eiganda stofnunarinnar Sarah Powers. Áslaug leggur nú stund á dýpra Yin jóga nám við stofnunina sem felst í því að vera í stöðugu sambandi við mentor, skila inn verkefnum og mæta í vinnustofur erlendis. Sálarrækt og andleg málefni eru mikilvægur partur af náminu og með tengsl hugar og líkama að leiðarljósi hefur hún lagt áherslu á jóga og núvitundarhugleiðslu við úrvinnslu andlegra og líkamlegra áfalla. Áslaug kenndi Yin jóga hjá Heillandi Hug 2019 til 2020 auk þess að taka að sér einkatíma. Áslaug er einnig þjóðfræðingur að mennt.

Áslaug Heiður Cassata
Jóhanna Benediktsdóttir

JÓHANNA BEN

Jóhanna hefur alltaf haft gaman að hreyfingu en þá var sund og hlaup aðalval. Það var svo árið 2011 að hún fór að bæta jóga við hreyfirútínuna. Ástæðan fyrir því var að hún var farin að finna fyrir álagsmeiðslum í mjöðmum og hnjám eftir langar hlaupaæfingar. Henni fannst því tilvalið að prófa jóga aðalega til að vinna með liðleika og styrk og þannig koma í veg fyrir eymsli. Það var strax í fyrsta tímanum sem Jóhanna heillaðist og fann þá töfra sem jóga gefur. Ekki aðeins jókst liðleiki og styrkur heldur fylgdi rólegri hugur og sáttari sál í kjölfarið. Í öðrum orðum þá jókst vellíðan þar þar sem sál, hugur og líkamani tengjast.
Haustið 2018 tók hún jógaskrefið lengra og skráði sig í jógakennaranám og útskrifaðist sem jógakennari ári seinna frá Jógastúdíóinu í Reykjavík. Strax í kjölfarið fór hún að kenna hjá Yoga Líf og hefur kennt þar síðan með aðaláherslu á mjúkt endurnærandi jóga þar sem helsti fókus er að hlusta á líkamann, tengjast og njóta áhrifana/töfrana. Haustið 2021 bætti hún við sig Yin jóga kennararéttindum hjá Sólir Yoga og Alicia Casillas. Jóhanna er einnig með MSc gráðu í viðskiptafræði ásamt því að vera snyrtifræðingur og mikill náttúruunnandi.

SIGRÚN KRISTJÁNSDÓTTIR

Sigrún hafði farið í um að bil fimm jógatíma á átta ára tímabili og þótt það ágætt, þegar hvatvísin varð til þess að hún skráði sig Í 200y jógakennaranám hjá Drífu Atladóttur í Jógastúdíó markmið var að losa um vöðvabólgu, bakverki og komast í splitt og léttast. Þegar náminu lauk var hún laus við vöðvabólgu þyngri (en hraustari) og örlítið nær því að komast í splitt. Hins vegar var hún ástfangin af jóga, töluvert hamingjusamari í lífinu almennt og farin að nýta sér það til að hægja og líða vel. Í framhaldinu sótti Sigrún sér nám í yinyoga og byrjaði að fikta við að kenna jóga og stofnaði Jógafyirtækið RínRún jóga ásamt Katrínu Hrefnu Jóhannsdóttur þar sem hún naut þess að kenna bæði opna tíma og lokuð námskeið ætluð fólki komið yfir sextugt og einstaka sinnum bjórjóga fyri hópa sem óskuðu eftir því. Sigrún er einnig menntaður Leikskólakennari, áhugamanneskja um útivist og heilsu almennt og leggur nú stund á nám í Lýðheilsufræði við Háskóla íslands.

Sigrún Kristjánsdóttir
Valgerður Gísladóttir

VALGERÐUR GÍSLADÓTTIR

Valgerður er grunnskólakennari að mennt. Starfar sem sérkennari í Hofstaðaskóla í Garðabæ. Valgerður lauk 230 stunda jógakennaranámi hjá Drífu Atladóttur í Jógastúdíó árið 2017 og Yoga Nidra kennaranámi hjá Matsyendra Saraswati árið 2019. Valgerður hefur kennt jóga á vinnustöðum og í grunnskólum. Hún byrjaði að stunda jóga árið 2011 hjá Mörthu Ernsdóttur jógakennara eftir að hafa fengið heilablóðfall og fann hvað jóga og hugleiðsla gerði henni gott bæði andlega og líkamlega. Í gegnum hennar eigin iðkun kýs hún að mæta sjálfri sér með mýkt og mildi til að efla líkamlegan og andlegan styrk

Arnbjörg G. Finnbogadóttir

ARNBJÖRG G. FINNBOGADÓTTIR

Yoga hefur alltaf heillað Arnbjörgu og eftir hennar fyrstu kynni var ekki aftur snúið. Jóga er nú fyrir löngu orðið stór partur af lífinu. Hún hefur dvalið á Yogastöðinni Kripalu Center í Bandaríkjunum. Hún lauk Jógakennaranámi frá Jóga Stúdíó árið 1997 R 200. Hún hefur kennt Jóga í Sporthúsinu frá 2012 til lok árs 2019. Hún var Coaching /lífsþjálfi frá ltsnlp London 2006 til 2007. Brautargengi 2005. Hún lauk Svæðameðferðafræði frá Svæðanuddskóla Þórgunnu árið 2000 og NLP Practitioner og Master námi 2002 í undirmeðvitundarfræði ( neuro, linguistic programming ). Hún hefur jafnframt lært Jóga hjá fjölmörgum kennurum eins og Amrid Deasi, Shanti Deasi, Peter Steros, Hugleiðslu og Friðarmiðstöðinni ásamt því að hafa tekið margs konar námskeið i mannlegum samskiptum. Hún lauk LEVITYyOGA R 200 kennaranámi 2018 hjá Peter Sterios, E RYT 500 og James Baily Ryt 500 í Somerset Englandi.

VALA ÓMARSDÓTTIR

Vala er menntaður Yogakennari frá Jógastúdíó Reykjavíkur og með kennsluréttindi í mat based Pilates frá Future Fit Trainingí London. Hún kynntist fyrst Jóga og Pilates í New York árið 2000 þar sem hún æfði undir leiðsögn Lindu Farrell. Síðan þá hefur hún bæði kennt í London og í Reykjavík m.a. í Baðhúsinu, World Class, Marelybone Dance Studio, Sporthúsinu, Kramhúsinu, Háskóla Íslands, Ballettskóla Eddu Scheving og í Jógastúdíó Reykjavíkur. Hún kennir og hefur umsjón yfir hreyfingu leikara á Leikarabraut, Sviðslistadeildar við Listaháskóla Íslands. 

Vala Ómarsdóttir
Björk

BJÖRK

Björk tók 200 tíma jóganám hjá Yoga Alliance á Indlandi og hef verið að kenna ýmsar tegundir jóga síðan. Hennar helsta ástríða er að iðka hreyfingu í náttúrunni og leiðbeina fólki að ná sínum markmiðum þar sem ég starfa einnig sem heilsu markþjálfi. Hún leggur mikla áherslu á öndun og spennulosun í jógatímum en markmiðið er að iðkendur gangi út úr tímanum í góðu jafnvægi og í tengingu við sinn líkama og huga. Allir tímar enda á leiddri slökun.

TINNA GUÐLAUG ÓMARSDÓTTIR

Tinna er menntaður dansari frá Salzburg Experimental Academy of Dance í Austurríki. Hún útskrifaðist þaðan árið 2015 með Diploma gráðu í Dance performance. Samhliða dansnáminu ákvað hún að næla sér í Pilates kennararéttindi í Munich, Þýskalandi, bæði til að styrkja sig og til að auka starfsmöguleika í framtíðinni. Námið heitir BASI Pilates (Body Arts and Science International) og er undir handleiðslu Rael Isacowitz. Tinna flutti heim til Íslands árið 2016 og fór beint í að kenna bæði ballett, nútímadans, skapandi dans og svo Pilates. Tinna hefur því kennt Pilates meira og minna í 6 ár á Íslandi, í Ballettskóla Eddu Scheving, Kramhúsinu, Háskóla Íslands og Hreyfingu heilsulind. Tinna er núverandi nemandi á þjálfarabraut Heilsu- og íþróttafræði við Háskóla Íslands.

Tinna Guðlaug Ómarsd.

Rósa Ómarsdóttir

RÓSA ÓMARSDÓTTIR

Rósa er menntaður dansari og danshöfundur frá Listaháskóla Ísland og dansskólanum P.A.R.T.S. í Brussel. Hún kynntist jóga og pilates í gegnum dansnám sitt. Þar lærði hún pilates og Iyengar jóga með áherslu á nákvæni og góða líkamansstöðu. Rósa hefur iðkað jóga sérstaklega til að koma í veg fyrir meiðsli sem oft vilja verða í gegnum dansnám. Eftir að náminu lauk hefur Rósa sífellt leitað leiða til þess að styrkja og liðka líkamann auk þess að næra sálina. Hún blandar saman jóga og pilates, en bætir einnig inn öðrum æfingum sem hafa reynst henni vel til þess að vinna með eða koma í veg fyrir meiðsli og verki, styrkja stoðkefi líkamans og bæta líkamsstöðu og vellíðan almennt. Rósa hefur lært jóga og pilates bæði á Íslandi og í Belgíu og hefur kennt víðsvegar um Brussel og Reykjavík, bæði einkatíma og hóptíma.

ÍRIS ÁSMUNDAR

Íris er dansari, útskrifuð frá Rambert School of Ballet and Contemporary Dance. Samhliða náminu sótti hún einnig kennararéttindi hjá The Barre Collective í London. Hún dansaði síðar með Emergence Postgraduate Dance Company í Manchester þar sem hún öðlaðist MA gráðu í ‘Performance and Professional Practices’. Íris hefur unnið að hinum ýmsu dans – og listaverkefnum, bæði erlendis og á Íslandi, ásamt því að kenna tíma við Kramhúsið, Richmond Barre, RESET by Form, Yoga Líf og Listdansskóla Íslands.

Íris Ásmundsdóttir