PILATES

  • PILATES 1
    Námskeið þar sem farið er vel í grunninn og tæknina á Pilatesæfingakerfinu. Farið er í grunnreglurnar 5 í Pilates og byggður upp góður grunnur svo auðveldara sé að byggja upp á grunninn og halda áfram með erfiðari æfingar eftir námskeiðið. Hentar nánast öllum óháð aldri, kyni eða bakgrunni. Tímarnir eru kenndir á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 18.50. Kennarar námskeiðs eru Vilborg Anna Hjaltalín og Íris Ásmundardóttir

  • PILATES 2
    Gott framhald af námskeiðinu “Pilates 1”. Hér eru kenndar fleiri æfingar og byggt upp á þann grunn sem nemendur hafa lært á byrjendanámskeiðinu. Auðvelt að stjórna álaginu vel sjálfur því oft eru kenndar mismunandi útfærslur af hverri æfingu og nemandi getur valið sitt erfiðleikastig.
    Tímarnir eru kenndir á þriðjudögum og fimmtudögum
    klukkan 17.40.
    Kennarar námskeiðs eru Vilborg Anna Hjaltalín og Íris Ásmundardóttir

  • PILATES 3
    Þetta námskeið er ætlað þeim sem eru komnir með meiri grunn í Pilates og eru tilbúnir að taka Pilatesæfingar með kraftmeira flæði. Tímarnir eru annars vegar kenndir á
    mánudögum og miðvikudögum klukkan 16.30 og mánudögum og miðvikudögum klukkan 17.40.
    Kennari námskeiðsins er Vilborg Anna Hjaltalín

  • PILATES 4
    Hér eru Pilates æfingarnar gerðar í kraftmiklu flæði, nauðsynlegt að vera búinn að byggja upp góðan grunn. Tímarnir eru kenndir á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 16.30.
    Kennari námskeiðs er Vilborg Anna Hjaltalín

  • HÁDEGISPILATES OG YOGA
    60 mínútna tímar þar sem unnið er vel með djúpvöðvakerfi líkamans, kvið, bak og rassvöðva. Æfingarnar gefa betri líkamsstöðu, tóna líkamann, teygja stutta vöðva, bætir líkamsstjórn og eykur blóðflæði. Tímarnir enda á góðum yogateygjum og slökun. Upplagt að nýta hádegishléið og skella sér í hádegistímana. Tímarnir eru kenndir á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 12.10.
    Kennari námskeiðs er Vilborg Anna Hjaltalín

  • PILATES FYRIR BETRA STOÐKERFI
    Rólegar og mjúkar Pilatesæfingar ætlaðar einstaklingum sem glíma við stoðkerfisvandamál. Pilatesæfingar eru góðar styrkjandi æfingar með áherslu á djúpa vöðvakerfi líkamans. Þær liðka og styrkja líkamann, bæta líkamsstöðu og líkamsvitund. Æfingarnar eru mjúkar en áhrifaríkar, högg á liði, sinar og liðbönd er lítið. Langflestir þola Pilates æfingar, þær henta langflestum enda er oft hægt að gera æfingarnar í nokkrum útfærslum þannig að nemandi getur gert þá útfærslu sem hentar hans getustigi. Í æfingunum er lögð áherslu á önduní æfingunum sem getur hjálpað til við spennu og streitulosun. Tímarnir eru kenndir á mánudögum og
    miðvikudögum klukkan 13.20.
    Kennari námskeiðs er Rósa Ómarsdóttir.

  • PILATES 55 PLÚSS
    Hér eru Pilates æfigarnar gerðar rólega og sniðið að einstaklingum 55 plús. Mjúkar og styrkjandi Pilates æfingar sem eru mjög góðar til að viðhalda góðri líkamsstöðu, styrk, liðleika og jafnvægi. Svo frábært með pilates að það er hægt að stunda þær langt fram eftir aldri, hægt að gera æfingarnar mjög einstaklingsmiðaðar því oftast eru til mismunandi útgáfur af  hverri æfingu. Tímarnir eru kenndir þriðjudaga og fimmtudaga klukkan 11.00.
    Kennari námskeiðs er Vilborg Anna Hjaltalín.

  • MORGUNPILATES
    Notalegar styrkjandi pilatesæfingar sem koma þér vel inn í daginn. Lögð áhersla á að styrkja djúpa vöðvakerfið okkar, kvið,bak og rassvöðva ásamt almennt styrkjandi æfingum. Tímarnir eru kenndir þriðjudaga og fimmtudaga klukkan 9.00. Kennari námskeiðs er Magdalena Bartczak.
    Athugið að þessir tímar fara fram á ensku.